25.10.2007 | 11:24
Má ég blogga um bjartsýnisstöðvar heilans?
Rakst á frétt á mbl.is sem segir frá því að vísindamenn við New York háskóla hafi fundið bjarsýnisstöðvar mannsheilans. Það var víst notuð "háþróuð heilmyndatækni" til að mynda heila þátttakenda í rannsókninni þegar þau ímynduðu sér góða og slæma hluti. Góðar og slæmar "ímyndir" virtust kveikja á mismunandi stöðvum í heilanum. Þablega það...
Sé ekki alveg hvernig þetta tengist bjartsýni. Fólkið er að ímynda sér eitthvað gott en þetta segir manni ekkert um hvernig þau muni takast á við vandamál, hvort þau séu bölsýnisfólk eða gætu unnið til bjartsýnisverðlauna Brösters. Ef fyrri vísindafréttamennska á mbl.is segir mér eitthvað þá mun það vera það að
1) fréttamaðurinn hefur væntanlega ekki lesið rannsóknargreinina, bara lesið UM greinina. Þanig kannski varð einhver misskilningur í þýðingu á texta.
2) ég mun hins vegar ekki eiga í neinum vandræðum með að finna greinina sjálfur, það er jú ekki nema einn háskóli í öllu New York fylki og væntanlega bara einn rannsakandi sem er í heilarannsóknum. Það skýrir hvers vegna ekki er minnst á hvar rannsóknin var gerð eða hver gerði hana.
Ég opnaði fyrstu 6 fréttirnar í tækni og vísinda flokknum á mbl.is og þetta var sú eina sem ekki var hægt að blogga um. Getur verið að fréttamennirnir séu orðnir þreyttir á því að við séum að gagnrýna léleg vinnubrögð? Eða gleymdist bara að bjóða uppá að tengja blogg við þessa frétt?
Um bloggið
Jón Grétar Sigurjónsson
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (20.3.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 3448
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
joningvar
heidamaria
svanurmd
hallarut
gummisteingrims
bjarnihardar
vantru
apalsson
arnigunn
einarjon
evropa
gudmundurpalsson
olijon
visindavaka
siggiulfars
thorirmar
Athugasemdir
Þegar fréttamenn skrifa um hluti sem þeir hafa ekki vit á.
Halla Rut , 26.10.2007 kl. 11:47
En þar sem ég hef ekkert vit á þessu heldur þá hef ég vit á að þegja og segi ég bara góða helgi.
Halla Rut , 26.10.2007 kl. 11:50
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.